Námskeið um nærandi lífsstíl

Fræðsla um skipulagningu mataræðis

Heilsunámskeið, hollt mataræði, heilsa, hollur lífsstíll, námskeið

Að velja að borða hollt alla daga

Persónuleg námskeið fyrir alla þar sem farið er í grunnatriði á skipulagi á hollu mataræði ásamt ýmsu sem kemur að hollum lífsstíl. Dagsetningar námskeiða má finna í fellilistum undir námskeiðslýsingum hér að neðan.

Námskeið

Heilsunámskeið, hollt mataræði, heilsa, hollur lífsstíll, námskeið

Grunnur að hollu mataræði og skipulagning

Persónulegt námskeið fyrir alla þar sem farið er í skipulag, hráefnaval, meðhöndlun, eldunaraðferðir og samsetningu.

Heilsunámskeið, hollt mataræði, heilsa, hollur lífsstíll, námskeið

Skipulagning mataræðis fyrir 40+

Námskeiðið fyrir alla á forstigi breytingaskeiðs og eftir breytingaskeið þar sem farið er í skipulag,  næringu og hráefnaval. 

Heilsunámskeið, hollt mataræði, heilsa, hollur lífsstíll, námskeið

Gjafabréf fyrir grunnnámskeið og námskeið 40+

Gjafabréf á heilsunámskeið er falleg gjöf. Tímasetning, lengd og kostnaður getur verið mismunandi eftir námskeiðum.

Umsögn

Fræðandi og skemmtilegt

Skipulagning mataræðis fyrir 40+ er afskaplega upplýsandi og skemmtilegt námskeið sem ég get heilshugar mælt með. Gýja hefur viðað að sér yfirgripsmikilli þekkingu víðsvegar að sem hún á auðvelt með að miðla. Á námskeiðinu blandar hún saman fróðleik um heilsusamlegt mataræði með áherslu á fæðu sem styður þarmaflóruna og hormónabreytingar. Einnig fjallaði hún um mikilvægi hreyfingar á þessu æviskeiði og síðast en ekki síst fengum við að smakka afskaplega ljúffenga rétti, fullir af hollustu!
Námskeiðið ýtti virkilega við mér að huga enn meira að mataræðinu og hvernig hægt er að styðja við eigin heilsu með bættu mataræði.

Hildur Halldórsdóttir

AUKI - Mannauðsráðgjafi
Umsögn

Auðvelt að innleiða ráðin

Ég mæli eindregið með heilsunámskeiði Gýju. Hún býr yfir afar víðtækri og greinargóðri þekkingu á lifandi fæði, hreyfingu og bætiefnum fyrir konur 40+. Gýja fór á skýran og hagnýtan hátt yfir hvernig hinn ákjósanlegi dagur getur litið út hvað varðar næringu, hreyfingu og almenna heilsueflingu. Einnig fengum við að smakka ljúffenga og næringarríka rétti sem Gýja hafði útbúið, stútfulla af próteini og hollum hráefnum. Framsetningin var bæði fræðandi og skemmtileg og auðvelt að sjá hvernig hægt er að innleiða ráðin í daglegt líf. Ég mæli heilshugar með námskeiðinu fyrir alla sem vilja bæta heilsu sína og líðan.

Anna Sigurborg Ólafsdóttir

Frábært og fróðlegt

Frábært og fróðlegt námskeið og fyrir mig gott tækifæri til að uppfæra aðeins mataræðið þó að það hafi reyndar verið bara nokkuð heilsusamlegt. Takk fyrir mig kæra Gýja!

Unnur Ágústsdóttir

Viðskipta og kynjafræðingur

Lærði mikið nýtt

Ég mæli 100% með heilsunámskeiði Gýju. Hún er greinilega mjög vel lesin um þessi mál og hefur sjálf fylgt heilsusamlegu mataræði í um 20 ár þannig að þetta er hægt. Það er alltaf þannig að það eru ekki allir sammála öllu sem sagt er um heilsufæði og kemur hún einnig inn á það og nýjustu rannsóknir. Ég er búin að lesa mig mikið til um heilsufæði og bjóst ekki við að læra mikið nýtt en henni tókst það og er ég henni mjög þakklát. Þið verðið ekki svikin ef þið farið á námskeið hjá Gýju. Mæli enn og aftur 100% með.

Rósa Björk Hauksdóttir

Neglur og list

Tímanum vel varið

Ég var svo heppin að skrá mig á Heilsunámskeið Gýju og verð að segja að tímanum hefði ekki getað verið betur varið. Það var alveg ný upplifun af námskeiði að mæta í matarboð í heimahúsi, njóta góðs matar í frábærum félagsskap og fá smakk af alls kyns áhugaverðri hollustu. Hrein unun var að fylgjast með ákveðnum og hröðum vinnubrögðum Gýju í eldhúsinu þar sem allt lék í höndunum á henni og hún var óspör á alls kyns fróðleik. Ég mæli með þessu námskeiði fyrir alla þá sem vilja prófa eitthvað alveg nýtt og auka um leið vitneskju og virðingu fyrir sjálfum sér með því að bera ábyrgð á eigin heilsu.

Gunnhildur Arnardóttir

Framkvæmdastjóri

Kom skemmtilega á óvart

Ég mæli heilshugar með heilsunámskeiðunum hennar Gýju. Hún fer vel yfir fjölbreytt efni sem tengist hollu mataræði, eldunaraðferðum, samsetningu matar og margt fleira sem bætt getur meltingu og líkamlega líðan. Auk þess fær maður að bragða alls konar matvæli og uppskriftir sem koma skemmtilega á óvart. Takk fyrir mig elsku Gýja, og takk fyrir skemmtilegt og fræðandi námskeið.

Lilja Karlsdóttir

Heilari

Ætti að vera sjónvarpsþáttur

Gýja er mjög fróð um heilsutengd málefni og kemur þessu vel frá sér. Hún bauð okkur að smakka dýrindis heilsufæði sem hún hristi fram úr erminni á meðan hún talaði. Svo geislar hún alveg af heilbrigði, þetta ætti eiginlega að vera sjónvarpsþáttur.

Ása Valgerður Eiríksdóttir

Lífeindafræðingur

Mjög gaman

Ég hef þekkt Gýju lengi og vissi að hún væri vel að sér í mat og að hún hefði sérstakan áhuga á hollu mataræði. Ég fór á heilsunámskeið Gýju þar sem ég var forvitinn að læra um grænmetisfæði en uppistaðan í mínu fæði er kjöt og sjávarfang ýmis konar. Námskeiðið stóð fyllilega fyrir sínu, mjög gaman að prófa gómsætan mat sem Gýja hafði matreitt og læra um uppskriftirnar á bakvið það sem við borðuðum ásamt öðrum fróðleik um hráefni sem ég hef ekki notað hingað til en mun örugglega reyna að prófa mig áfram með í framtíðinni.

Schumann Didriksen

Framkvæmdastjóri

Heilstæð ráðgjöf

Námskeið sem kemur skemmtilega á óvart – heilstæð ráðgjöf þar sem hollusta og líðan er í fyrsta sæti. Mæli hiklaust með námskeiðinu fyrir alla sem hafa áhuga á matreiðslu og heilsurækt.

Geir Sigurðsson

Fasteignasali

Gekk út innblásin

Ég var svo heppin að komast á fyrsta námskeiðið hennar Gýju og mæli heilshugar með því. Hún er frábær og hvetjandi kennari og einstaklega vel að sér í öllu sem viðkemur heilsu, lífstíl og hollum mat, kryddum, olíum og vítamínum. Mjög áhugavert að skoða heilsumátt matartegunda, glugga í gömul fræði um mat og jurtir sem hafa lækningarmátt og ekki má gleyma góðum skipulagsleiðbeiningum við meðhöndlun og geymslu matvara. Ég gekk út af námskeiðinu innblásin og með fullt af hugmyndum sem munu nýtast mér. Takk kærlega fyrir mig.

Margrét Sigurðardóttir

Ritari ráðherra

Ekki enn einn kúrinn

Ég hef farið á ýmis námskeið um heilsu og mataræði og get heilshugar mælt með þessu námskeiði. Gýja hefur viðað að sér yfirgripsmikilli þekkingu og leggur mikinn metnað í að miðla og gefa af sér. Hún hefur tileinkað sér agaðan lífsstíl og skín af heilbrigði. Það er svo frábært að þetta er ekki enn einn kúrinn heldur upplýsingar um góða næringu og samsetningu matar, án öfga.

Margrét Jónsdóttir

Verkefnisstjóri

Nytsamleg fræðsla

Virkilega grípandi og nytsamleg fræðsla fyrir þá sem eru að leita betri leiðar til að næra líkamann og auka daglega orku sína. Takk fyrir mig, mæli með þessu námskeiði.

Ester Sveinbjarnardóttir

Staðsetning

Öll námskeið eru haldin að Grandavegi 42, íbúð 203 í G-húsi. Gengið er inn í G-hús úr garði. Bílastæði eru  við Grandaveg eða í portinu við JL húsið.

Hafa samband

Scroll to Top